Músíkmóment í tónlistardeildinni 25. apríl kl 16:30, þegar að Hugrún og Kormákur mæta með akústíska tóna!

Hugrún er 24 ára garðyrkjunemi og tónlistarkona sem hefur spilað allskonar tónlist í gegnum tíðina. Hún gaf nýverið út plötuna When I Close My Eyes sem kom út í janúar síðastliðnum í samvinnu við Erik Sjöstedt og hefur haldið sig við popp síðan þá.

Með Hugrúnu verður Kormákur Valdimarsson, 15 ára tónskáld, Hafnfirðingur, tónlistarunnandi, gítarsnillingur og bókaáhugamaður.