Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Minecraft námskeið - uppbókað

Minecraftnámskeið fyrir krakka

Námskeið Börn
  • Fjölnotasalur , Bókasafn Hafnarfjarðar
Intrix í samvinnu við Bókasafn Hafnarfjarðar býður í annað sinn upp á hið sívinsæla Minecraftnámskeið fyrir krakka.
Hinn geysivinsæli leikur Minecraft kann að virðast örlítið flókinn í fyrstu – hvernig passar þetta allt saman? Hvernig get ég búið til nýja hluti og efni? Hvernig forðast ég að springa í loft upp þegar Læðingur nær mér?!
Snillingarnir í Intrix eru mætt enn og aftur og bjóða krökkum frá 6-10 ára að koma og læra leikinn, hvort sem þau eru að stíga fyrstu skrefin eða þurfa smá hjálp við að leggja lokahönd á geimflaugina sína.
Þátttaka er bundin skráningu og fer hún fram á Bókasafninu eða í tölvupósti: [email protected]. Takmörkuð sæti.