Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

minecraft

Minecraftnámskeið fyrir krakka

Námskeið Börn
  • Fjölnotasalur, Bókasafn Hafnarfjarðar
Intrix í samvinnu við Bókasafn Hafnarfjarðar býður aftur upp á hið sívinsæla Minecraftnámskeið fyrir krakka.
Hinn geysivinsæli leikur Minecraft kann að virðast örlítið flókinn í fyrstu – hvernig passar þetta allt saman? Hvernig get ég búið til nýja hluti og efni? Hvernig forðast ég að springa í loft upp þegar Læðingur nær mér?! – Og svo auðvitað dýflissur, aukapakkar, og allt hitt.
Snillingarnir í Intrix eru mætt enn og aftur og bjóða krökkum frá 6-10 ára að koma og læra leikinn, hvort sem þau eru að stíga fyrstu skrefin eða þurfa smá hjálp við að leggja lokahönd á geimflaugina sína.
Þátttaka er bundin skráningu og fer hún fram á Bókasafninu eða í tölvupósti: [email protected].
Takmörkuð sæti.