Til umfjöllunar 13. apríl verður bókin Hvíti tígurinn. Hvíti tígurinn er snilldarlega skrifuð saga um napran veruleika Indlands, saga um spillingu, örbirgð, kúgun, stéttaskiptingu og viðurstyggð sem viðgengst jafnt meðal fátækra og ríkra. Aðalpersónan Balram játar opinskátt bresti sína og brot í háðskri frásögn sem um leið er bæði heillandi og sláandi.
Balram Halwai er frumkvöðull, þjónn, hugsuður og morðingi – í senn siðblint ljúfmenni og auðmjúkur fantur. Hann brýst úr fjötrum þorpsins sem ól hann og fjölskyldunnar sem kúgaði hann til þess eins að lenda undir hælum annarra þrælahaldara í stórborginni. En Balram er frábrugðinn hundruðum milljóna undirokaðra landa sinna: hann velur sér nýtt líf, þar sem hann er sjálfur sá sem mútar, kúgar og græðir.

Lestrarfélagið er elsti starfandi hópur Bókasafns Hafnarfjarðar, og er sem áður í traustum höndum Hjalta Snæs Ægissonar, bókmenntafræðings með meiru. Hópurinn hittist annan miðvikudag mánaðar kl. 17:15 og pælir í bók mánaðarins.
Farið er um víðan völl innan bókmennta, allt frá léttum reyfurum yfir í heimsbókmenntir skoðaðar og kynntar og ræddar yfir kaffibolla og kruðeríi.

Leslistinn fyrir vorið 2022 er eftirfarandi:
12. janúar – Sigurður Gylfi Magnússon o.fl.: Þættir af sérkennilegu fólki (kynning og höfundaspjall)
16. febrúar – Sofi Oksanen: Hundagerðið
9. mars – Viola Ardone: Barnalestin
13. apríl – Aravind Adiga: Hvíti tígurinn
11. maí – Steinunn Sigurðardóttir: Systu megin