Í febrúar tökum við fyrir Hundagerðið eftir Sofi Oksanen, en þar tvinnast líf allslauss innflytjanda í Helsinki saman við sögu Úkraínu eftir fall Sovétríkjanna; í umróti sem fylgdi sjálfstæði landsins reyndi hver að bjarga sjálfum sér og þegar spillingin heima fyrir mætti vestrænni græðgi urðu fátækar stúlkur á milli. Í valdabaráttu auðugra fjölskyldna varð líf þeirra einskis vert, frjósemin það eina sem þær höfðu að selja. Sofi Oksanen er einstaklega glögg á mannlega tilveru og í þessari áhrifamiklu og spennandi sögu er stungið á viðkvæmum kýlum samfélagsins í beittum texta og vel byggðri frásögn. Hundagerðið er fimmta bók Sofi Oksanen sem kemur út á íslensku. Erla E. Völudóttir þýddi úr finnsku. Lestrarfélagið Framför er elsti starfandi hópur Bókasafns Hafnarfjarðar, og er sem áður í traustum höndum Hjalta Snæs Ægissonar, bókmenntafræðings með meiru. Hópurinn hittist annan miðvikudag mánaðar kl 17:15 og pælir í bók mánaðarins. Farið er um víðan völl innan bókmennta, allt frá léttum reifurum yfir í heimsbókmenntir skoðaðar og kynntar og ræddar yfir kaffibolla og kruðeríi. Leslistinn fyrir vorið 2022 er eftirfarandi: 12. janúar – Sigurður Gylfi Magnússon o.fl.: Þættir af sérkennilegu fólki (kynning og höfundaspjall) 9. febrúar – Sofi Oksanen: Hundagerðið 9. mars – Viola Ardone: Barnalestin 13. apríl – Aravind Adiga: Hvíti tígurinn 11. maí – Steinunn Sigurðardóttir: Systu megin