Lestrarfélagið Framför er elsta lestrarfélag landsins og hittist það mánaðarlega á Bókasafni Hafnarfjarðar, leitt af bókmenntafræðingnum Hjalta Snæ Ægissyni. Þema vetursins er íslenska nýraunsæið, og við hefjum leika með bók Vésteins Lúðvíkssonar, Gunnar og Kjartan, sem er rituð á árunum 1971-1972, en í henni er veitt innsýn í menntakerfi og menningu í hinu stéttskipta samfélagi í Reykjavík á sjöunda áratugnum. Vésteinn Lúðvíksson sló nýjan tón í íslenskum bókmenntum með sagnagerð sinni um og eftir 1970. Leslisti Framfarar, veturinn 2023-2024: 11. október: Vésteinn Lúðvíksson: Gunnar og Kjartan (1971-1972) 15. nóvember: Málfríður Einarsdóttir: Samastaður í tilverunni (1977) 13. desember: Guðlaugur Arason: Eldhúsmellur (1977) 10. janúar: Magnea J. Matthíasdóttir: Hægara pælt en kýlt (1978) 14. febrúar: Guðmundur Steinsson: Stundarfriður (1979) 13. mars: Ása Sólveig: Treg í taumi (1979) 10. apríl: Auður Haralds: Læknamafían (1980) 8. maí: Ólafur Haukur Símonarson: Vík milli vina (1983)