Viola Ardone frá Napólí er höfundur mánaðarins og munum við fara yfir bókina Barnalestin. Það er þriðja bók höfundar og sú fyrsta sem vekur verulega athygli utan heimalandsins. Halla Kjartansdóttir þýddi.

Barnalestin er ljúfsár og heillandi ítölsk skáldsaga byggð á sönnum atburðum og fjallar um harða lífsbaráttu, fjölskyldubönd og neyðina sem markar fólki bás og örlög. Bókin segir frá Amerigo, sem er sjö ára og býr í sárri fátækt með móður sinni í Napólí. Heimsstyrjöldinni er nýlokið og innviðir landsins eru í rúst. Kommúnistar vilja bjarga börnum borgarinnar frá verstu hörmungunum og koma þeim til vetrardvalar norður í landi, þar sem ástandið er skárra. Þúsundum saman eru börn úr suðrinu send með lest eftir Ítalíu endilangri og veröldin sem mætir þeim í norðri er framandi. Nægur matur, hlý föt, öryggi – og ný fjölskylda, nýir siðir og ný tækifæri. Sum snúa aldrei aftur til fyrra lífs.

Lestrarfélagið er elsti starfandi hópur Bókasafns Hafnarfjarðar, og er sem áður í traustum höndum Hjalta Snæs Ægissonar, bókmenntafræðings með meiru. Hópurinn hittist annan miðvikudag mánaðar kl 17:15 og pælir í bók mánaðarins.Farið er um víðan völl innan bókmennta, allt frá léttum reyfurum yfir í heimsbókmenntir skoðaðar og kynntar og ræddar yfir kaffibolla og kruðeríi.

Leslistinn fyrir vorið 2022 er eftirfarandi:
12. janúar – Sigurður Gylfi Magnússon o.fl.: Þættir af sérkennilegu fólki (kynning og höfundaspjall)
9. febrúar – Sofi Oksanen: Hundagerðið
9. mars – Viola Ardone: Barnalestin
13. apríl – Aravind Adiga: Hvíti tígurinn
11. maí – Steinunn Sigurðardóttir: Systu megin