Músíkmóment á Bókasafni Hafnarfjarðar, fyrsta þriðjudag mánaðar klukkan 17:00! Þann 5. október kemur Kristín Sesselja, 22ja ára söngkona og lagahöfundur sem hefur klifið upp á stjörnuhimininn nýverið. Kristín semur aðallega popp, en hefur búið til sinn eigin einstaka tónlistarstíl sem endurspeglar líf hennar og persónulega reynslu, allt frá ástarsorg til vináttu. Tónleikarnir verða í aðalútlánasal á jarðhæð bókasafnsins.