Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Klíó - Ritsmiðja fyrir skúffuskáld

Klíó – Ritsmiðja fyrir skúffuskáld

Ritsmiðja Fullorðnir Eldri borgarar
  • Fjölnotasalur, Bókasafn Hafnarfjarðar
Klíó skrif og ritstjórn bíður upp á ritsmiðjur fyrir skúffuskáld á Bókasafni Hafnarfjarðar. Ekkert þátttökugjald – skráning á [email protected]
Námskeiðið er bæði fyrir byrjendur og lengra komna, og er leitt af Sæunni Unu Þórisdóttur og Ásdísi Káradóttur. Þær eru bókmenntafræðingar með bakgrunn í ritlist og ritstjórn sem fara fyrir fjögurra skipta námskeiði í ritlist fyrir skúffuskáld og nýpenna, ætluðu til þess að hvetja einstaklinga til þess að skrifa betri texta og að taka gagnrýni á skrif sín. Námskeiðið er öllum opið og ókeypis, engrar forþekkingar né reynslu er krafist.
Námskeiðið er ólíkt öðrum námskeiðum fyrir skúffuskáld að ýmsu leiti og sem dæmi má nefna að;
· Þátttakendur munu kynnast ritstjórnarferlinu.
· Þátttakendum er boðið að skila inn texta og fá ritstjórn og endurgjöf.
· Farið verður yfir praktísk atriði varðandi útgáfu.
· Þátttakendur læra að nýta leidda hugleiðslu við hugmyndavinnu.
· Æft verður hvernig hægt er að nota myndir og minningar sem kveikjur.
Námskeiðið verður fjögur skipti, tvo tíma í senn frá 16:00 til 18:00 á eftirfarandi dagsetningum: þriðjudaginn 3. október, fimmtudaginn 5. október, þriðjudaginn 10. október, og fimmtudaginn 12. október.
Skráning fer fram í tölvupósti á [email protected] eða á skilaboðum hér á Facebook.