Klíó skrif og ritstjórn bíður upp á ritsmiðjur fyrir skúffuskáld á Bókasafni Hafnarfjarðar. Ekkert þátttökugjald – skráning á [email protected] Námskeiðið er bæði fyrir byrjendur og lengra komna, og er leitt af Sæunni Unu Þórisdóttur og Ásdísi Káradóttur. Þær eru bókmenntafræðingar með bakgrunn í ritlist og ritstjórn sem fara fyrir fjögurra skipta námskeiði í ritlist fyrir skúffuskáld og nýpenna, ætluðu til þess að hvetja einstaklinga til þess að skrifa betri texta og að taka gagnrýni á skrif sín. Námskeiðið er öllum opið og ókeypis, engrar forþekkingar né reynslu er krafist. Námskeiðið er ólíkt öðrum námskeiðum fyrir skúffuskáld að ýmsu leiti og sem dæmi má nefna að; · Þátttakendur munu kynnast ritstjórnarferlinu. · Þátttakendum er boðið að skila inn texta og fá ritstjórn og endurgjöf. · Farið verður yfir praktísk atriði varðandi útgáfu. · Þátttakendur læra að nýta leidda hugleiðslu við hugmyndavinnu. · Æft verður hvernig hægt er að nota myndir og minningar sem kveikjur. Námskeiðið verður fjögur skipti, tvo tíma í senn frá 16:00 til 18:00 á eftirfarandi dagsetningum: þriðjudaginn 3. október, fimmtudaginn 5. október, þriðjudaginn 10. október, og fimmtudaginn 12. október. Skráning fer fram í tölvupósti á [email protected] eða á skilaboðum hér á Facebook.