Smiðja fyrir þá yngri, þá sem ekki eru með mikinn tíma og fyrir þá sem vilja öðruvísi nálgun. Við höfum staðið í ströngu í vetur að hjálpa fólki við búninga- og brynjugerð, enda allir að græja sig fyrir Heima og Himingeima! En nú er hér smiðja fyrir þá sem eru aðeins yngri, ekki með eins mikinn tíma og vilja smá öðruvísi nálgun. Komdu og búðu til þinn búning fyrir Heima og Himingeima! Við gerum einfalda fantasíubúninga, skyrtur og skikkjur og svo bara það sem okkur dettur í hug undir handleiðslu frábærra fixara! Komdu með hvað það sem þér dettur í hug í sarpinn; gömul rúmföt, gardínur, boli og peysur. Við finnum not fyrir það! Aðalatriðið er að vera með.