Karl Ágúst Úlfsson - Fífl sem ég var

Karl Ágúst Úlfsson kemur til okkar á Bókasafn Hafnarfjarðar laugardaginn 13. desember kl. 14. Hann les úr bók sinni, Fífl sem ég var, og spjallar og leiðir gesti í gegnum tíma spéspegils þjóðar, sem hann sjálfur átti ríkan þátt í að skapa.

Hver þekkir ekki föndurkennarann, leigubílstjórann, Silla, Geir (og Grana) og margar fleiri hetjur úr Spaugstofunni? Og ekki má gleyma Eyjólfi í Ytri-Hnjáskeljum, Danna í Líf-myndunum og fleiri slíkum.

Leikandi allra þessara kunningja okkar, Karl Ágúst Úlfsson, rifjar hér upp sköpunarsöguna sem vissulega hefur ekki verið án átaka. Þá fléttast inn barátta hans sjálfs við illkynja sjúkdóm, sem hefur gengið vonum framar.