Bókasafn Hafnarfjarðar stendur fyrir mánaðarlegum örfyrirlestrum til að auðga andann og fræða um allt milli himins og jarðar, merkilegt og ómerkilegt, furðulegt og fyndið, eitthvað sem allir vilja vita og það sem fólk vissi ekki að það vildi vita. Hver fyrirlestur er 15-20 mínútur og á sér stað í aðalsal safnsins. Í tilefni af vitunarvakningarmánuði um Endómetríósu mun Lilja Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi, standa fyrir fræðslu. Lilja hefur nýlega lokið við rannsókn á endómetríósu, en þessi huldi sjúkdómur er oft ógreindur langt fram eftir aldri sjúklings og hefur varanleg áhrif á líf fólks. Lilja mun fjalla um endómetríósu almennt, auk þess að ræða niðurstöður rannsóknar sinnar um virkni heilbrigðiskerfisins gagnvart einstaklingum með endómetríósu. ____________ Hafnarfjörður Library hosts a monthly short-lecture-series to bring some interesting knowledge into your day. Today’s lecturer is Lilja Guðmundsdóttir, social worker, who recently published a research paper on endometriosis, but this little known but common illness often remains undiagnosed for a very long time, negatively affecting the life of the patient. Lilja will discuss endometriosis in general, along with her findings of attitudes and general treatment of endometriosis patients in the Icelandic health care system.