Þórunn Jarla Valdimarsdóttir hefur skrifað tugi bóka, skáldverk og fræðirit og kann þá list að lýsa upp kima horfinna hátta og opna dyr inn í heima á mörkum forneskju og upplýsingar.
Nýjasta bók hennar, Bærinn brennur, fjallar um morðið á Natani Ketilssyni á Illugastöðum í Húnavatnssýslu. Ráðskona Natans, Sigríður, og vinnukona hans, Agnes, lögðu á ráðin með Friðriki, eggjuðu og veittu dygga aðstoð. Björn Blöndal sýslumaður blés til dómþinga um málið í héraði. Nákvæmar yfirheyrslur yfir sakborningum og sveitungum þeirra eru hér raktar en þær varpa nýju ljósi á málið og færa lesanda nær raunverulegum vettvangi en þekktar sögur munnmælanna.