Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

pedro garcia

Höfundur í heimsókn – Pedro Gunnlaugur Garcia

Upplestur Eldri borgarar Fullorðnir
  • Útlánasalur 2. hæð, Bókasafn Hafnarfjarðar
Höfundur mánaðarins er Pedro Gunnlaugur Garcia, nýlegur verðlaunahafi íslensku bókmenntaverðlaunanna, og höfundur bókarinnar Lungu
Lungu er fjölskrúðug skáldsaga sem teygir anga sína vítt og breitt um 20. öldina og langt inn í fjarlæga framtíð: frá Toskana við upphaf fyrri heimsstyrjaldar þar sem óhóflegt ólífuát bjargar hinum unga Enzo undan herþjónustu, til innflytjendahverfa Toronto-borgar þar sem táningsstúlka verður ástfangin af dularfullum umrenningi, þaðan til Hörgárdals þar sem risavaxni haninn Júpíter ræður ríkjum, og loks til Reykjavíkur ársins 2089.
Hér fléttast saman sögur af brostnum draumum, töfrum og forboðnum ástum – sem smám saman draga fram í dagsljósið leyndarmál sem legið hefur í þagnargildi í heila mannsævi.
Pedro Gunnlaugur Garcia tekst í þessari mögnuðu bók á við áleitnar spurningar sem varða líf og dauða af óvenjulegu hispursleysi, um leið og hann skemmtir lesandanum af einlægri frásagnargleði.