Höfundur marsmánaðar er Hildur Knútsdóttir, en hún hefur skrifað skáldsögur fyrir börn og fullorðna. Hún er hvað þekktust fyrir ungmennabækur sínar sem unnið hafa til fjölda verðlauna. Myrkrið milli stjarnanna er fyrsta hrollvekja hennar fyrir fullorðna. Bókin er martraðakennd samtímasaga sem dregur lesendur inn í myrkustu kima Reykjavíkur. Iðunn vaknar alltaf þreytt á morgnana. Allir hafa ráð á reiðum höndum – læknirinn, sálfræðingurinn, vinkonurnar – en ekkert þeirra fær að heyra alla söguna. Hún segir engum frá leyndarmálunum sem hrannast upp og stigmagnast; frá myrkrinu sem er ólíkt öllu öðru myrkri. Iðunn segir engum frá „henni“. Hildur verður með okkur á Bókasafni Hafnarfjarðar þann 22. mars kl. 17:00