Höfundur septembermánaðar er Brynhildur Björnsdóttir.
Í nýútkominni bók sinni, Venjulegar konur, ræðir hún við sex íslenskar konur sem hafa verið í vændi, konur sem bera sára reynslu sína ekki utan á sér og lýsa aðstæðum sem aldrei ættu að viðgangast. Jafnframt kannar hún fyrirbærið vændi frá ýmsum hliðum, ræðir við fagfólk sem vinnur með þolendum og varpar kastljósinu á kaupendur sem bera mestu ábyrgðina með því að viðhalda eftirspurninni.
Bókin er rituð að frumkvæði Evu Dísar Þórðardóttur, brotaþola vændis og baráttukonu. Viðburðurinn verður í lessal á annari hæð.