Bragi Páll Sigurðarson orsakaði öldugang með titli nýjustu bókar sinnar, Arnaldur Indriðason deyr, sem segir frá því þegar að einn ástsælasti rithöfundur þjóðarinnar, Arnaldur Indriðason, finnst myrtur í kjallaraíbúð í Norðurmýrinni.
Hvernig tengist hinn mislukkaði rithöfundur Uggi Óðinsson morðinu og hví fléttast strákarnir úr 70 mínútum inn í málið?
Arnaldur Indriðason deyr er önnur skáldsaga Braga Páls, en sú fyrri, Austur, fékk verðskuldað lof.
Bragi Páll verður með upplestur og spjall þann mánudaginn 4. apríl 2022.