Birna frá Samtökunum ‘78 leiðir hinsegin hitting fyrir alla aldurshópa, öll kyn og alla yfirhöfuð sem þurfa stað til að vera þau sjálf og eiga stund í friði frá umheiminum í öruggu og elskandi rými. Heitt á könnunni og almenn yndislegheit. Hinsegin hittingur er haldinn þriðja mánudag í mánuði kl 17:00 í fjölnotasal bókasafnsins. Einnig er hægt að ganga inn bakdyramegin frá Austurgötu.