Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Viðburður - söngvaskáld

Hafnfirsk söngvaskáld á Bókasafni Hafnarfjarðar

Tónleikar
  • Bókasafn Hafnarfjarðar, 1. hæð
Bókasafn Hafnarfjarðar kynnir til leiks þrjá hafnfirska listamenn sem leika og flytja eigin tónlist.
Sveinn Guðmundsson leikur ný og nýleg lög en hann gaf út sína aðra plötu „Skrifstofuplanta“ árið 2020 og er að taka upp efni á nýja plötu sem kemur út seinna á árinu. Kristmundur Guðmundsson ætlar að leyfa okkur að skyggnast ofan í skúffuna og spila gömul og ný lög sem leynast þar.
Koi (Kjartan Orri Ingvason) leikur lög af plötum sínum „Sum of All Things“ frá 2009 og „Solitude“ sem kom út 2017 ásamt nýjum.
Viðburðurinn verður í aðalsal á fyrstu hæð, er aðgengilegur og að sjálfsögðu öll velkomin.