Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

óskrifað blað ljósmyndasýning eva ágústa

Glergalleríið – Óskrifað blað; Ljósmyndasýning eftir Evu Ágústu

Sýning Börn Eldri borgarar Fjölskyldur Fullorðnir Unglingar
  • Glergalleríið, Bókasafn Hafnarfjarðar
Ljósmyndarinn Eva Ágústa opnar sýningu í Glerrýminu á allraheilagramessu, mánudaginn 1. nóvember. Ljósmyndasýningin ber heitið Óskrifað blað, því ljósmyndir eru að mörgu leyti eins og óskrifað blað; þó svo myndirnar segi sína sögu, bjóða þær upp á okkar eigin hugmyndir um fortíð, nútíð og framtíð.
Sýningin er tvískipt, myndir annarsvegar úr Hafnarfirði og svo sambland náttúru við verk manneskjunnar í landslaginu víðsvegar um landið.
Sýningin opnar kl 17:00 og eru allir velkomnir. Verkin verða til sýnis til og með 5. janúar.
Viðburðurinn er styrktur af Hafnarfjarðarbæ.