Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

18. maí - Glæpafár_ ungir afbrotamenn

Glæpafár á Íslandi | Ungir Afbrotamenn – Ritnámskeið fyrir unglinga með Ragnheiði Gestsdóttur

Ritsmiðja Unglingar
  • 2. hæð, Bókasafn Hafnarfjarðar
Erum við einhverntíman of ung fyrir glæpasögur? Áður en Holmes eltist við Baskervillehundinn og áður en Erlendur fer í gegnum hráslagalegan daginn eru aðrir glæpir. Kennarar sem hverfa, ósmekkleg dýr sem skíta á hausinn á moldvörpum.
Við erum aldrei of ung fyrir glæpasögur.
Og við erum aldrei of ung til að skrifa glæpasögur.
Í þessari smiðju mun Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur, leiða unga höfunda inn í heim glæpasögunnar í skemmtilegri og skapandi smiðju sérstaklega hannaðri fyrir unglinga með áhuga á svolítið ólöglegum óhugnaði sem vilja spreyta sig á að skrifa glæpasögur, en smiðjan er miðuð inn á 14 ára og eldri. Ragnheiður er þeim aldurhópi vel kunn, enda höfundur sögunnar Úr Myrkrinu sem hefur hlotið mikið lof innan aldursflokksins.
Skráning er í smiðjuna, og eru takmörkuð sæti í boði. Skráning fer fram í gegnum tölvupóst. Sendist á: [email protected]