Ebba Guðný frá Pure Ebba kemur í heimsókn á Bókasafn Hafnarfjarðar og ræðir um næringu smábarna og kríla sem eru að uppgötva mat. Ebba Guðný er kennari að mennt og hefur getið sér gott orðspor sem höfundur matreiðslubóka, þá sérstaklega bókinni Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða. Ebba fer yfir matargerð, hollustu fyrir litla nartara, hvað er sniðugt og hvað ber að forðast. Kríli eru að sjálfsögðu velkomin með, og það er alltaf heitt á könnunni.