Hrafnhildur Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur, kennari og faggildur Gottman leiðbeinandi, mætir á foreldramorgunn og spjallar við okkur um margvísleg málefni sem nýtast þeim sem eru að feta sín fyrstu skref með nýtt kríli. Meðal umræðuatriða verður m.a.: Ég, þú við, undirbúningur fyrir foreldrahlutverkið. Barnið heim, hvað svo? Áskoranir í nýju hlutverki. Þroski barna og tengslamyndun. Hvernig leysum við ágreining? Hvernig höldum við nándinni? Við hvetjum foreldra til að mæta með krílin og góða skapið í kaffi, kruðerí og fræðslu á Bókasafni Hafnarfjarðar