Foreldramorgnar Bókasafns Hafnarfjarðar eru opnir öllum. Við bjóðum foreldrum og börnum þeirra að koma og hittast í þægilegu umhverfi, fræðast og spjalla um daginn og veginn. Þann 12. september mun Jenný Maggý Rúriksdóttir frá jógastúdíóinu Faðmi leiða ungbarnajóga og vera með stutta umfjöllun því tengda. Jenný er menntaður jógakennari og hefur lagt stund á fræðin bæði hérlendis og erlendis ásamt því að leiða meðgöngujóga við Lífsgæðasetur Hafnarfjarðarbæjar í St. Jósefsspítala. Hlökkum til að sjá ykkur! Dagskrá foreldramorgna haustið 2022: 12. september – Ungbarnajóga með Jenný 10. október – Ólafur Grétar, fjölskylduráðgjafi með feðraspjall 7. nóvember – Tónagull krílatónsmiðja með Adam. 5. desember – Gifssmiðja/Jólagjafagerð (Skráningar þörf)