Fjölskyldustund - ímyndaðir hlutir

Fyrsti laugardagur mánaðar og við bjóðum auðvitað upp á fjölskyldustund! Vilborg Bjarkadóttir mætir og leiðir smiðju um ímyndaða hluti. Krakkar kokka upp hugmyndir um það sem þeim finnst vanta í heiminn og búa það svo til! Gengið er út frá því að velta fyrir sér vandamálum og vinna með það sem þeim finnst betur mega fara með lausnamiðaða hugsun og nýsköpun að vopni. Hvaða hlut er hægt að hanna ef gat kemur á stígvélin? Ef að það drýpur úr krananum? Þegar þú færð hlaupasting? Hvernig má lækna veikan bangsa eða hvaða uppfinningu þarf til að fá gott veður?
Við komumst að því á bókasafninu!