Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Fataskiptimarkaður

Fataskiptimarkaður

Skiptimarkaður Börn Fjölskyldur Unglingar
  • Fjölnotasalur, Bókasafn Hafnarfjarðar
Fataskiptimarkaður á Bókasafni Hafnarfjarðar!
Þau stækka svo hratt þessar elskur, og núna þegar kólnar í veðri áttum við okkur á að jakkinn sem fór ofan í kassa í fyrra er bara allt of stuttur!
Hví ekki að gefa honum framhaldslíf, mæta með skóla- og útivistarfatnað og sjá hvort að einhver sé ekki að losa sig við stærri stærð?
Það kostar ekkert að vera með og það þarf ekki að koma með föt til að fá nýjan fatnað.
Markaðurinn er í höndum Önnu Helgu, ljóðskálds, lífskúnstners og endurnýtingarspekúlants og verður frá kl 15:00 til 19:00 í fjölnotasal safnsins.
Við hvetjum alla til að skoða í skúffur, og sjá hvort eitthvað sé til staðar sem mætti öðlast framhaldslíf, sér í lagi útivistarfatnað á börn, allt frá skóm yfir í snjógalla.