Bókasafn Hafnarfjarðar býður öll velkomin á lifandi og fróðlega bókmenntastund þar sem Margrét S. Höskuldsdóttir, rithöfundur og handhafi Blóðdropans 2025, og Sæunn Unu Þórisdóttir, bókaritstjóri, segja okkur frá því hvernig bók fer frá fyrstu hugmynd til fullbúinnar útgáfu. Margrét gefur innsýn inn í það hvernig hún vinnur að verkum sínum: – hvernig hugmynd kviknar – hvernig hún byggir upp spennu, persónur og fléttu – hvaða rannsóknir liggja að baki – og hvernig ferlið þróast frá fyrstu drögum. Sæunn ræðir hlutverk ritstjórans og hvernig samstarf höfundar og ritstjóra mótar bókina: – hvernig ritstjóri les handrit með gagnrýnum en skapandi augum – hvaða samtal þarf að eiga sér stað til að efla textann og hvers vegna ritstjórn er ómissandi hluti af góðri bók Saman gefa þær innsýn í sköpunarferlið og faglega vinnu á bak við tjöldin – ferðalag sem lesendur sjá sjaldnast en skiptir öllu máli fyrir lokaniðurstöðuna. Öll eru hjartanlega velkomin.