Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Ganga álfar

Barnaganga í leit að álfum

Menningar- og heilsugöngur Smiðjur Börn Fjölskyldur
  • Bókasafn Hafnarfjarðar,

Vilt þú læra að teikna álfa? Boðið verður upp á listagöngu fyrir börn á öllum aldri og fjölskyldur.

Gengið verður frá Bókasafni Hafnarfjarðar að Hellisgerði og til baka. Teiknað verður úti meðan á göngunni stendur en einnig verður boðið upp á opna listasmiðju á bókasafninu að göngunni lokinni.

Í göngunni rannsökum við og leitum að álfum, skimum með stækkunarglerum og álfarömmum og leitum að efnivið til þess að vinna með í listasmiðjunni eftir á. Gangan verður um klukkustundarlöng en það verður stoppað  reglulega á leiðinni til þess að gera stuttar teikniæfingar og fleira.

Þegar við erum búin að rannsaka híbýli álfanna og finna/búa til efnivið verður labbað aftur á bókasafnið þar sem verður opin föndursmiðja til þess að teikna, lita og búa til sinn eigin álf. Epli í boði fyrir svanga könnuði!