Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Bangsagisting

Bangsagistipartí á Bókasafni Hafnarfjarðar

Bangsagisting Börn
  • , Bókasafn Hafnarfjarðar
Sendu bangsann þinn í bókasafnspartí! Við bjóðum alla knúsuvini, mjúka og harða, í heimsókn á bókasafnið til að taka þátt í sérstöku náttfarapartíi á alþjóðlega bangsadeginum.
Mæting hefst 13:00 – og allir mættir kl 17:00. Bangsar verða að taka með sér teppi til að lúra undir, – og annað ef þeir nauðsynlega þurfa. Starfsfólk bókasafnsins verður svo hér um nóttina að passa að allt gangi nú vel.
Daginn eftir má sækja vinina frá og með opnun kl 11:00
Takmörkuð pláss eru í boði og bangsarnir þurfa því að skrá sig með því að senda póst á [email protected].
Sjáumst á bangsadaginn!