Laugardaginn 18. nóvember býður Bókasafn Hafnarfjarðar upp á ljóðasmiðju undir yfirskriftinni: ,,Allir geta samið.” Langar þig að læra að skrifa ljóð? Vantar þig innblástur eða langar þér að koma þér af stað í að semja? Þá er þetta smiðja fyrir þig! Smiðjan er í höndum rithöfundarins, skáldsins og fjöllistakonunnar Eyrúnar Óskar Jónsdóttur. Allir hjartanlega velkomnir.