Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

addragandinn_valskan

Aðdragandinn – Nanna Rögnvaldardóttir – Valskan

Upplestur Jóladagskrá Fullorðnir Eldri borgarar
  • Útlánasalur 2. hæð, Bókasafn Hafnarfjarðar
Aðdragandinn – jólabókadagskrá Bókasafns Hafnarfjarðar hefst! Við fögnum nýrri bók hvern þriðjudag í nóvember og endum svo með pompi og pragt á Kynstrunum öllum þann 2. desember
Fyrsti höfundur í jólaundirbúningi er Nanna Rögnvaldardóttir með bókina Valskan, sem er fyrsta skáldsaga Nönnu Rögnvaldardóttur sem áður hefur skrifað fjölda bóka um matargerð og matarsögu. Frásögnina byggir hún á lífi formóður sinnar, Valgerðar Skaftadóttur, sem fædd var árið 1762. Heimildum og skáldskap er fléttað saman svo úr verður grípandi saga um harða lífsbaráttu en líka óvæntar lausnir, þrautseigju og ástir.
Bókin segir frá prestsdótturinni Völku, sem á sér ýmsa drauma. Helst af öllu langar hana að sigla til Kaupmannahafnar á vit ævintýranna, spássera um steinlögð stræti, sjá hallir og gullturna og hefðarfólk með hárkollur aka um í glæsivögnum. Að öðrum kosti vill hún verða auðug húsfrú á höfuðbóli og hafa margar vinnukonur. En náttúran grípur harkalega í taumana, bæði sú sem sýnir mátt sinn með veðurofsa, eldgosum og harðindum en líka sú sem býr innra með Völku, kveikir ástríðu og losta og tekur stundum á sig mynd slóttugrar skepnu; völskunnar. Sumir draumar Völku eiga eftir að rætast, aðrir verða að engu en þegar upp er staðið leynist gæfan þó kannski þar sem hana grunaði síst.
Aðdragandinn – Jólabókadagskrá Bókasafns Hafnarfjarðar:
7. nóvember – Nanna Rognvaldardóttir : Valskan
14. nóvember – Eiríkur Örn Norðdahl : Náttúrulögmálin
21. nóvember – Ljóðakvöld : Anton Helgi Jónsson, Draumey Aradóttir og Eyrún Ósk Jónsdóttir
28. nóvember – Ingi Markússon : Svikabirta
Kynstrin Öll: 2. desember
Ragnheiður Gestsdóttir – Steinninn
Vilborg Davíðsdóttir – Land Næturinnar
Tómas R. Einarsson – Gangandi bassi
Vigdís Grímsdóttir