Aðdragandinn 2025 - lilja ósk snorradóttir

Líður að jólum og nýir titlar flæða í hillurnar, okkur til mikillar gleði. Bókasafn Hafnarfjarðar hampar vel völdum höfundum og framlagi þeirra til jólabókaflóðsins í hverri viku nóvembermánaðar á mánudögum kl. 17:30.

Þegar Lilja Ósk flækir fæturna í hundabúri í miðju matarboði og dettur á höfuðið er hún sannfærð um að hún muni jafna sig fljótt og örugglega, enda hefur hún hvorki tíma né þolinmæði til annars. Raunin verður þó önnur. Hvað tekur kona til bragðs sem týnir sjálfri sér? Hvenær ætli heimsins besti dagur í helvíti komi?

Bókin Heimsins besti dagur í helvíti er fyrsta bók Lilju, hrá, einlæg, átakanleg og á köflum fyndin frásögn af því hvernig lífið getur breyst á einu andartaki.