Fyrsti höfundurinn í Aðdragandanum er Jón Atli Jónasson með bókina Dauðinn er bara myrkur – Magnað andrúmsloft einkennir þessa ískyggilegu og óhefðbundnu glæpasögu. Odd Strange einkaspæjari býr í gömlu hjólhýsi nærri Malaga. Hann á sér óvenjulega sögu: ólst upp í Reykjavík hjá afar sérkennilegum foreldrum, var júdókappi og starfaði í lögreglunni í Osló. Dag einn fær hann í fangið hryllilegt mál sem virðist tengjast fortíð hans. Aðdragandinn í nóvember færir okkur skref fyrir skref nær jólum eina síðu í senn. Við fáum höfund í heimsókn hvern föstudag í nóvember þar sem við kynnum spennandi og nýjar bækur í aðdraganda jóla. Á Aðdragandanum vörpum við ljósi á allskonar ritverk og njótum flóru íslenskra bókmennta – og svo er auðvitað frábært að hlusta á smá ritsnilld og skreppa svo í Jólaþorpið til að komast í hátíðarskap!