Líður að jólum og nýir titlar flæða í hillurnar, okkur til mikillar gleði. Bókasafn Hafnarfjarðar hampar vel völdum höfundum og framlagi þeirra til jólabókaflóðsins í hverri viku nóvembermánaðar á mánudögum kl. 17:30. Emil Hjörvar Petersen er annar höfundur Aðdragandans og mætir með framtíðardystópíuna Eilífðarvetur. Sagan gerist mörgum öldum eftir að siðmenning nútímans leið undir lok. Á einangraðri eyju sem eitt sinn hét Ísland ríkir viðvarandi vetur, mannskæðir frostbylir bresta daglega á og enginn kemst burt. Fortíðin hefur fallið í gleymsku og frumstæð ættbálkasamfélög draga fram lífið við nær ómögulegar aðstæður. Sagnaþulirnir Tara og Breki sjá vonarglætu þegar þau hitta fyrir Maríu, fullstarfandi vélkonu sem grafist hafði undir rústum í fyrndinni en er nú fangi þeirra sem fundu hana. Botnlaus þekking hennar gæti komið lífsbaráttu fólks yfir á réttan kjöl og jafnvel leitt til þess að leið fyndist yfir hafísinn. Í skjóli nætur bjarga sagnaþulirnir vélkonunni en í kjölfarið hefst flótti yfir vetrarríki þar sem aðeins eitt lögmál virðist gilda; að komast af, sama hvað það kostar.