Elías Rúni er mörgum kunnur sem teiknari og myndlýsir, en hér kynnir hann grafíska sögu um að finna sjálfan sig, en bókin segir frá Elíasi sem tuttugu og átta ára teiknara sem hefur aldrei séð sjálfan sig í speglinum. Hann leggur upp í ferðalag þar sem hann tekst á við skömm, yfirstígur innbyggða fordóma, kemur út fyrir sjálfum sér, skiptir um nafn og fornafn og lærir að tala um sig á nýjan hátt. Fyrsta skiptið er myndasaga um gleðina sem felst í því að finna sinn stað í eigin líkama. Leiðin að því er ekki átakalaus en Elías teiknar upp hvernig hægt er að horfa í spegil og sjá sjálfan sig í fyrsta skiptið. Fyrsta skiptið er saga um gleðina sem felst í því að finna sinn stað í eigin líkama. Aðdragandinn í nóvember færir okkur skref fyrir skref nær jólum eina síðu í senn. Við fáum höfund í heimsókn hvern föstudag í nóvember þar sem við kynnum spennandi og nýjar bækur í aðdraganda jóla. Á Aðdragandanum vörpum við ljósi á allskonar ritverk og njótum flóru íslenskra bókmennta – og svo er auðvitað frábært að hlusta á smá ritsnilld og skreppa svo í Jólaþorpið til að komast í hátíðarskap!