Rómantíkerinn og yndishöfundurinn Ása Marin kemur í heimsókn með bókina Öruggt skjól á Eskifirði, sem er bráðskemmtileg rómantísk aðventusaga. Dag einn er Kristínu nóg boðið: Vinnan og þriðja vaktin eru að ganga frá henni og hún leggur óvænt af stað austur á firði til að heimsækja góðan vin og hugsa sinn gang. Eiginmaðurinn vill ólmur fá hana aftur heim en fjallmyndarlegur Eskfirðingur skýtur upp kollinum og flækir málin. Aðdragandinn í nóvember færir okkur skref fyrir skref nær jólum eina síðu í senn. Við fáum höfund í heimsókn hvern föstudag í nóvember þar sem við kynnum spennandi og nýjar bækur í aðdraganda jóla. Á Aðdragandanum vörpum við ljósi á allskonar ritverk og njótum flóru íslenskra bókmennta – og svo er auðvitað frábært að hlusta á smá ritsnilld og skreppa svo í Jólaþorpið til að komast í hátíðarskap!