Útlánareglur Hver lánþegi fær skírteini sem verður að framvísa í hvert skipti til að fá bækur eða önnur gögn að láni. Skírteinið gildir einungis fyrir eiganda þess. Greitt er árgjald fyrir skírteinið. Börn og unglingar undir 18 ára fá ókeypis skírteini gegn ábyrgð forsjáraðila. Ekki má lána fullorðnum gögn út á barnaskírteini. Eldri borgarar og öryrkjar fá ókeypis skírteini. Ef plastskírteini glatast þarf að greiða vægt gjald fyrir nýtt. Lánstími er mismunandi eftir tegund gagns. Á útlánstíma er hægt að endurnýja gögn ef það er ekki biðlisti eftir þeim. Það er hægt að gera á Leitir.is, með tölvupósti á [email protected], í síma 585 5609 eða í afgreiðslu bókasafnsins. Við hvetjum fólk til þess að fylgjast vel með skiladegi. Ef ekki er skilað á réttum tíma koma dagsektir, sjá gjaldskrá. Lánþegi ber ábyrgð á öllum gögnum sem tekin eru að láni út á skírteini hans. Ef safngagn glatast eða skemmist þarf að skýra frá því og greiða bætur í samráði við upplýsingafræðing. Leitir.is Á Leitir.is er hægt að sjá skiladaga, endurnýja, taka frá, fá PIN-númer fyrir sjálfsafgreiðsluvélar, sjá stöðuna á bókasafnsskírteininu og fleira. Innskráning er með kennitölu (eða númeri á bókasafnsskírteini) og lykilorði eða með rafrænum skilríkjum. Fyrir börn og þau sem ekki eru með rafræn skilríki er hægt að sækja um lykilorð með því að hafa samband við bókasafnið eða fylgja eftirfarandi leiðbeiningum: Smellið hér til að sækja um lykilorð. Setjið inn kennitölu (User ID) eða skráið netfang. Fylgið leiðbeiningum sem berast í tölvupósti. Lykilorðið þarf að vera að minnsta kosti 8 stafabil og má ekki innihalda notendanafnið þitt eða kennitölu. Notaðu kennitölu og nýja lykilorðið til að skrá þig inn á Leitir.is. Hægt er að leita einungis í safnkosti Bókasafns Hafnarfjarðar á hfj.leitir.is. Stafrænt skírteini Bókasafn Hafnarfjarðar býður, fyrst bókasafna, upp á umhverfisvæna möguleikann að fá stafrænt bókasafnsskírteini í stað plastskírteinis – fyrir þá sem eru með snjallsíma. Stafræna skírteinið var unnið í góðu samstarfi við SmartSolutions. Þrenns konar samsetningar á bókasafnsskírteini eru nú í boði: Plastskírteini og stafrænt bókasafnsskírteini til viðbótar Eingöngu stafrænt bókasafnsskírteini Eingöngu plastskírteini Þeir sem eru með iPhone eru með innbyggt snjallveski en notendur Android síma þurfa að vera með smáforritið SmartWallet til þess að geyma stafræn skírteini.