Sumarlestrarkeppni 2025

Fréttir

Hér eru upplýsingar um nýju sumarlestrarkeppni bókasafnsins og lestrarhest vikunnar.

Sumarlestur og sumarkeppni einkennismynd 2025

Nú fer að líða að því að verk sem hafnfirsk börn sömdu verði hengd upp út um allan bæ sem fjársjóðsleit Bókasafns Hafnarfjarðar!

Börn fengu val um að skrifa ljóð eða örsögu, undir eigin nafni eða dulnefni.

Alls bárust 107 gild verk innan skilafrests og þökkum við kærlega fyrir þátttökuna.

Fjársjóðsleitin hefst formlega 6. júní. Hvernig virkar hún? Jú…:

  • Fáðu þér eyðublað og finndu eins marga fjársjóði (spjöld með verkum) og þú getur.
    • Sumarkeppni 2025
    • Eitt útfyllt eyðublað veitir lítinn glaðning á Bókasafni Hafnarfjarðar.
      Safnaðu eyðublöðum saman til að fá stærri glaðning!
  • Verðlaun verða veitt í byrjun næsta skólaárs fyrir bestu verkin.

Sumarlestur 2025 - myndrænar leiðbeiningar

Hvar eru fjársjóðirnir?

Hvar var verkunum skilað inn í keppnina? Fjársjóðirnir úr Áslandsskóla verða t.d. í Vesturbænum og Norðurbænum, fjársjóðunum sem var skilað á bókasafninu má finna á Holtinu (óháð því í hvaða skóla höfundurinn gengur).

Sumarkeppni - tafla

Lestrarhestur vikunnar

Lestrarhestur vikunnar verður á sínum stað í allt sumar. Skilaðu inn umsögn um bók og þú kemst í lukkupottinn!

Hægt er að nálgast eyðublöð á bókasafninu en svo er líka hægt að ná í þau hér: