Sumardagurinn fyrsti á bókasafninu – opið 12-16

Tilkynningar

Bókasafn Hafnarfjarðar verður opið 12-16 sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl.

Við opnum og brosum mót sól með kaffi, kleinur og sumardagsboð, góðir gestir mæta og allt verður hið bíðasta – svona eins og við vonum að veðrið verði í sumar!

sumardagurinn fyrsti

Dagskrá:

  • Kl. 13-14: Rúnalestur – ekki bara stafróf! Á fyrsta degi hörpu er um að gera að spá í hvað framtíðin ber í skauti sér. Rúnalestur er gömul hefð sem minnst er á í Hávamálum, enda rúnirnar kynngimagnaðar og merkingaþrungnar. Birita frá víkingaáhugamannafélaginu Rimmugýgi kemur til okkar og fjallar um þessa fornu list og hver veit nema að hún spyrji örlaganornirnar um framtíðina eins og sannri völvu er lagið?
  • Kl. 14-15: Norrænar skylmingar. Hressir kappar frá Víkingaáhugamannafélaginu Rimmugýgi ætla að kynna skylmingarnar frá þjóðveldisöld.
    Þetta jaðarsport hefur náð góðri fótfestu hérlendis og er undirflokkur sögulegra skylmingaíþrótta, en bardagaíþróttir hverskonar hafa lengi fylgt mannkyninu – þó að allt sé hér í bræðralagi og bróðerni.