Átthagadeild

Efni um Hafnarfjörð og Hafnfirðinga er safnað og varðveitt í Átthagadeildinni. Þar eru meðal annars bæjarblöð, ævisögur Hafnfirðinga og sögulegt efni.

Gestir bókasafnsins geta nálgast gögn úr deildinni með aðstoð starfsfólks í upplýsingaþjónustu á 2. hæð. Gögnin eru einungis til afnota á safninu.

Í útlánasal á 2. hæð er sérstakt Gaflarahorn með útgefnu efni um Hafnarfjörð og Hafnfirðinga sem er til útláns.