Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Hljóðfæri tónlistardeild

Hljóðfæri á tónlistardeild

Bókasafn Hafnarfjarðar hefur nýverið tekið upp á þeirri nýjung að hafa ýmis hljóðfæri í boði til afnota á safninu.
Hljóðfærin eru staðsett á tónlistardeildinni og áhugasamt tónlistarfólk getur fengið að koma og spila á þau sér að kostnaðarlausu.
Í boði eru rafmagnstrommusett, rafmagnsgítar og rafmagnsbassi, auk píanós og kassagítars.
Öll sem eru 12 ára og eldri geta komið og gripið í hljóðfærin og það eina sem þarf að hafa meðferðis er gilt bókasafnskort.