Bókaklúbburinn síðan – fyrir 16-25 ára

Fréttir

Þann 10. mars hefst samstarfsverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar og ungmennahússins Hreiðursins: Bókaklúbburinn Síðan. Þessi bókaklúbbur er ætlaður ungmennum á aldrinum 16-25 ára og verður stundum í Hreiðrinu og stundum á bókasafninu.

Fyrstu þemaspurningarnar eru:
• Hvaða bók fékk þig til að hlægja upphátt?
• Í hvaða bók var persóna sem pirraði þig?

Sjáumst í Hreiðrinu þann 10.mars klukkan 17:30!

Síðan bókaklúbbur

Þann 10. mars hefst samstarfsverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar og ungmennahússins Hreiðursins: Bókaklúbburinn Síðan.

Síðan hefur þá sérstöðu frá öðrum bókaklúbbum að í stað þess að allir lesi fyrirfram ákveðna bók og ræði hana er tveimur þemaspurningum varpað fram viku fyrir hitting og eiga þátttakendur síðan að koma með eða segja frá bók sem þeir tengja við aðra hvora eða báðar þemaspurningarnar.
Þessi bókaklúbbur er ætlaður ungmennum á aldrinum 16-25 ára og verður stundum í Hreiðrinu og stundum á bókasafninu. Vonast er til að móta dagskrána og þemun út frá notendum og bjóða af og til upp á ýmiss konar vinnusmiðjur og höfundaheimsóknir.

Snarl í boði, alltaf ókeypis!

Fyrstu þemaspurningarnar eru:
• Hvaða bók fékk þig til að hlægja upphátt?
• Í hvaða bók var persóna sem pirraði þig?

Sjáumst í Hreiðrinu þann 10.mars klukkan 17:30!

Ungmennahúsið Hreiðrið er staðsett í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn, Skólabraut 3.