Áminningarpóstar sendast ekki

Tilkynningar

Áminningarpóstar sendast því miður ekki þessa dagana. Hægt er að fylgjast með stöðu útlána á www.leitir.is til að forðast sektir.

Áminningarpóstar sendast ekki
Eftir kerfisuppfærslu á bókasafnskerfinu sem var keyrð 2. febrúar hafa því miður engir áminningarpóstar verið sendir til lánþega. Áminningarpóstur er allajafna sendur út til lánþega örfáum dögum fyrir skiladag til að minna á að skiladagur nálgast.
Búið er að tilkynna vandamálið til framleiðanda og málið er í skoðun hjá þeim í hæsta forgangi.
Margir lánþegar stóla á áminningarpóstinn og gætu því óafvitandi fengið á sig sektir.
Við hvetjum ykkur til að fylgjast með stöðu útlána á www.leitir.is til að forðast sektir og eins má alltaf heyra beint í okkur á Bókasafni Hafnarfjarðar í tölvupósti, skilaboðum eða símleiðis.
Við biðjumst afsökunar á þessum óþægindum.