Hljómsveitin Brek tvinnar saman hinum ýmsu áhrifum frá mismunandi stílum og reynir að finna nýjar og spennandi leiðir við notkun hljóðfæranna.
Hljómsveitin spilar á bókasafninu þriðjudaginn 20. júlí kl. 17:00.
Lög sveitarinnar eru sungin á íslensku en hún leggur áherslu á að nota fjölskrúðugt orðbragð og nýta þannig hinn mikla og fallega orðaforða sem íslenskan hefur upp á að bjóða.
Nýjasta plata Breks var tilnefnd sem Plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021.
Brek skipa Harpa Þorvaldsdóttir (söngur og píanó), Sigmar Þór Matthíasson (bassi), Guðmundur Atli Pétursson (mandólín) og Jóhann Ingi Benediktsson (gítar og söngur)